Ég hef komist að því að ég er haldinn stækri partífælni. Reyndar er partífælnin hluti af stærri heild, þar sem t.d. búðafælni og vinnufælni spila inn og í raun mætti draga allt þetta, og fjölmarga aðra þætti, saman í almenna manna- og félagsfælni. Partíhlutinn er þó eins og gefur að skilja hvimleiðari en margir hlutarnir enda hindrandi í daglegu lífi. Ég þjáist nefnilega af djammfælni í allravíðustu merkingu.
Eftir töluverðar vangaveltur og umræður er mig farið að renna í grun að þessi skortur á félagslyndi sé að e-u leyti arfgengur. Samt veit ég ekki alveg af hvaða mæli ættingjar mínir, eins og t.a.m. bræður, hafi þurft að kljást við þessi leiðindi. Mig grunar nú að annað hvort séu þeir töluvert betur staddir en ég genalega séð eða hafi a.m.k. lagt heldur meira á sig við að vinna á mannafælninni.
Í fyrrgreindu ljósi hef ég því ákveðið að taka mig hraustlega á. Svo ef fólk vill gera mér greiða, vera mér innan handar, styðja mig og styrkja, þá ætti það að bjóða mér eða jafn vel, ef nauðsyn krefur, draga mig nauðugan í partí og mannafagnaði hvers kyns. Það að umgangast fólk er, jú, auðvitað ekkert nema stanslaus æfing og algjör óþarfi að glutra niður þessari takmörkuðu færni sem manni hefur þó tekist, með þrotlausri vinnu, að ávinna sér í gegnum barna- og unglingsárin.
þriðjudagur, 22. nóvember 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
7 ummæli:
Já, skref eitt er að viðurkenna vandan.
En búðarfælni, það er skrítið. Ég hef ekki orðið var við það?
Búðafælni? Jah, ætli ég hafi þar ekki aðallega verið að hugsa um fatabúðir ...
Já, einmitt. Ég finn fyrir því sama. Ég held að þetta sé mjög flókinn komplex úr barnæsku, þegar mamma mín dróg mig með í sína ógurlegu búðarleiðangra.
Lágmark einu sinni hverja helgi já. Einu sinni til fimm sinnum þá eða? Ég er ekki haldin partýfælni held ég og vildi gjarnan fara í fleiri partý en ég geri. En ég er haldin vissri "galeiðu"-fælni sem orsakast fyrst og fremst í því hvað mér finnst í flestum tilfellum ógeðslega ömurlega leiðinlegt á téðri galeiðu.
Já mér finnst almennt mjög leiðinlegt á skemmtistöðum (þó ég kannist ekki við neina galeiðu). Þessvegna hitti ég ekkert endilega neitt verulegt magn af fólki þegar ég fer í partý.
Gleðileg jól!
Ertu farinn í heimsreisu?
Mig sárvantar flamingóabakgrunninn... áttu hann ennþá?
Skrifa ummæli