sunnudagur, 23. október 2005

Ef ég væri kona, þá hefði ég mögulega á e-m tímapunkti hugsað mér að mæta niður í bæ á kvennafrídeginum á morgun. Eins og þetta lítur út núna hefði ég hins vegar íhugað sterklega að sleppa því að mæta enda stefnir þetta greinilega í að verða að e-i gúddíhátíð a la 1.maí í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Hvar er uppreisnin í því? Hefur e-r yfir höfuð e-n minnsta áhuga á að hafa Sólveigu Pétursdóttur á staðnum?

En þar sem ég er karlmaður ætla ég alfarið að sleppa því að láta sjá mig enda er konum enginn greiði gerður á þessum degi með því að almennt sé gefið frí og að yfir- og eiginmenn séu voðalega umburðarlyndir. Allir ætla að „sýna stuðning sinn í verki“ en auðvitað þýðir það bara að þetta verður allt gleymt daginn eftir.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Var þetta fyrsta atriðið í klukk-færslunni semsagt?

Já, til andskotans með það að hlutirnir séu á réttri leið. Helvítis djöfull hvað ég er fúll yfir því.

- Önundr

Snabbi sagði...

Já, ég er neikvæði maðurinn á svæðinu, takk fyrir að benda á það augljósa.

Og nei, þessi klukkfærsla á örugglega aldrei eftir að líta dagsins ljós. Það er svo sem eftir öðru ...

Sigurjón sagði...

Já, mér sýndist rosalegt móment í kring um tetta í fréttum og svona. Hins vegar er tetta óneitanlega alveg fullkomid taekifaeri fyrir svona "laumu-karlrembur" til tess ad sýna umburdarlyndi um stutta stund, en halda svo uppteknum haetti.

Einar Steinn sagði...

Mér fannst þetta sannarlega áhrifaríkt, að standa í göngunni innan um 50.000 manns. Andinn var líka mikill í fólki. En ég er sammála því að þá þarf líka að láta kné fylgja kviði.

Mokki litli sagði...

Skoðaðu þessa síðu:
www.hamenntaskolinn.blogspot.com

Einar Steinn sagði...

Viltu ekki fara að blogga eitthvað meira?