Jæja, ef tenglalistaverkið efst á þessari bloggómynd hefur hingað til farið í taugarnar á e-m þá getur sá hinn sami slakað á næstu dagana. Í fyrri nótt var sturtað niður á heimasvæðinu mínu hjá Verslunarháskólanum í Kaupmannahöfn, þar sem ég hef fyrir þó nokkru hætt þar námi, og hafa linkarnir fögru líklegast skolast út e-s staðar á milli Skotlands og Færeyja.
Ég hef ekki enn nennt að athuga það en að öllum líkindum á ég e-r staðar afrit af blogginu eins og það leit út áður en Danirnir lokuðu á mig. Hins vegar finnst mér ólíklegt að þetta verði lagfært í nánustu framtíð. Eins og e-r lesendur þessa bloggs vita þá held ég af landi brott þann 31. janúar næstkomandi ásamt þeirri sætu. Næstu fjóra mánuðina munum við svo rúnta eilítið um Suður-Ameríku.
Vegna þessa finnst mér ósennilegt að bloggfærslur verði mikið fleiri á þessu bloggi fyrr en í fyrsta lagi í sumar. Það þýðir samt ekki að þrautseigir lesendur mínir muni ekkert heyra frá mér. Við Elín Lóa höfum nefnilega ákveðið að stofna ferðablogg á suduramerika.blogspot.com þar sem latínóandrúmsloftið mun vonandi ná að streyma alla leið frá rykugum netkaffihúsum Suður-Ameríku fram á skjái lesenda hér á Íslandi, eða hvar í heiminum sem þeir annars eru staddir.
þriðjudagur, 10. janúar 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli