föstudagur, 28. janúar 2005

Spennandi tímar hjá Vegagerðinni. Núna eru flestallir vegir, sem á annað borð eru opnir, orðnir greiðfærir. Í gær voru Mjóafjarðarheiði og Öxi mokaðar og verður gaman að fylgjast með framvindu mála í mokstrinum. Það væri nú t.d. hressandi að fara að sjá Dynjandis- og Hrafnseyrarheiðirnar opnaðar eldsnemma en um þær gilda, líkt og um Mjóafjarðarheiði og Öxi, svokölluð G-regla í snjómokstursreglum Vegagerðarinnar. Það þýðir að þær eru mokaðar tvisvar vor og haust, en háð snjóalögum. Sem sagt, ef þær leiðir, sem G-reglan á við, fennir algjörlega í kaf að hausti eru þær ekki opnaðar fyrr en tiltölulega auðvelt er að moka þær að vori og sýnt þykir að þær lokist ekki aftur í bráð.

G-reglan á einnig við Lágheiði, Öxafjarðarheiði og Hellisheiði eystri, sem og við Strandaveg um Bjarnafjarðarháls alla leið norður að Gjögri. Varðandi Djúpveg um Hestakleif/Eyrarfjall þá eru upplýsingar Vegagerðarinnar misvísandi. Skv. snjómokstursreglum og verklagslýsingum er gert ráð fyrir að Eyrarfjalli sé haldið opið allt árið 6 daga vikunnar en eins og allir vita er vegurinn þar yfir handónýtur og yfirleitt lokaður meira en fjóra mánuði á ári. Ekki það að ég kunni e-ð illa við (of)metnað vegagerðarmanna en upplýsingar um veginn hafa greinilega e-ð skolast til.

Lágheiðin milli Ólafsfjarðar og Fljóta er líklegast sá fjallvegur „í byggð“ sem lengst helst lokaður fram á sumar enda heiðin snjóþung með afdæmum. Vegurinn sjálfur var lagður árið 1948, tæpum tveimur áratugum á undan Múlavegi, og hefur ekkert breyst að ráði allt fram til dagsins í dag. Þótt ólíklegt þyki að menn leggi í að opna heiðina í bráð þá verður að athuga að vegurinn um Lágheiði liggur mun lægra (409 m) en bæði Öxi (532 m) og Mjóafjarðarheiði (578 m).

Vart er hægt að tala um Öxafjarðarheiðina sem fjallveg í byggð en þó er staða hennar í vegakerfinu að ýmsu leyti sérstök, þar sem hún er einn stofnvega landsins þrátt fyrir að vera sumarvegur og tiltölulega langt frá næsta þéttbýli. Trúlega telst hún þó til stofnvega vegna mikillar sumarumferðar, enda er leiðin milli Þórshafnar og Húsavíkur um 70 km styttri ef heiðin er farin en þegar ekið er um sléttuna. Snjóþyngsti kafli heiðarinnar liggur um Einarsskarð, sem þó er aðeins í um 380 m hæð. Má í þessu samhengi benda áhugasömum á nýopnaðan verkefnavef Vegagerðarinnar um Norðausturveg yfir Hólaheiði.

Hellisheiði eystri er einn allrahæsti fjallvegur landsins, 655 m, slagar hátt upp í hæstu fjallvegi miðhálendisins, og þyrfti vart að hafa mörg orð um opnun hennar núna. Vegurinn um heiðina var þó gerður allrækilega upp fyrir nokkrum árum og er nú vel fær öllum bílum að sumarlagi. Hefur heiðin hingað til verið opnuð ýmist í apríl- eða maíbyrjun, og ólíklegt að annar háttur verði hafður á nú þótt margan Vopnfirðinginn dreymi vafalítið um sunnudagstúr um Jökuldalshlíðina.

Þessar vangaveltur og samanburður á hæð veganna segja samt ekki allt því snjóalög eru auðvitað mismunandi eftir landshlutum og fjallvegir missnjóþungir. Hrafnseyrar- og Dynjandisheiðar eru oft ekki opnaðar fyrr en í apríl og er sú regla höfð á að önnur heiðin er ekki opnuð nema einnig sé mögulegt að opna hina. Lágheiðin, er eins og fyrr segir, iðulega ekki opnuð fyrr en mun síðar og seinasta ár var Strandavegur mokaður í marsbyrjun. Öxi er hins vegar yfirleitt opin 7 til 10 mánuði á ári svo þrátt fyrir mikla hæð er þar tiltölulega snjólétt miðað við fyrrnefnda vegi. Veðurhorfur nú gera enn fremur ráð fyrir frekar kólnandi veðri svo gera má ráð fyrir enn meiri snjó upp til fjalla áður en langt um líður.

Samt er aldrei að vita nema e-r fleiri rauðar línur hverfi á næstunni á færðarkorti Vegagerðarinnar enda snýst snjómoksturinn auðvitað bara um ákveðna þjónustu, og ef mögulegt er að veita hana þá er það sjálfsagt ef kostnaðurinn er ekki allt of mikill. Það er t.d. ekkert víst að fyrrnefndir austfirskir fjallvegir haldist opnir það sem eftir er vors en það getur verið vel þess virðir fyrir íbúa sveitarfélaganna í kring að nýta tækifærið núna meðan snjólétt er og opna þá.

Þeim, sem fannst færslan þrátt fyrir allt áhugaverð, er hér með þakkaður lesturinn ...

Uppfærsla, 30. jan., 14:40:

Samkvæmt færðarkorti Vegagerðarinnar var Hellisheiði eystri opnuð í gær en Eyrarfjallið í dag.

(- Rangt, Eyrarfjallið var í rauninni opnað á föstudaginn, Snæbjörn 18:00. 30.1.'05)

4 ummæli:

Sverrir sagði...

Takk fyrir gott yfirlit yfir moksturinn. Nú er ég loksins að komast inn í þessi mál.

Una sagði...

Í sumar ók ég Hrafnseyrar-og Dynjandisheiði og á auðvelt með að sjá fyrir mér hvers vegna þær eru ekki sérlega greiðfærar á veturna. Okkur skorti hinsvegar tíma til að keyra inn í Jökuldal, sem er leitt því þar má finna tóftir fæðingarbæjar afa míns, sem mig langar að sjá. Mér þætti gaman að fara þangað í sumar með góðu fólki, þegar vegir eru opnir á ný. Og gista svo jafnvel á Vonarlandi hennar Elínar Lóu, sem hún hefur lengi lofað að sýna mér (:

Nafnlaus sagði...

Það boð verður ávallt opið Una mín:) Og það er jafnvel spurning um að gera aðra tilraun í sumar og reyna að finna okkur bíl sem ber okkur þangað:) grilla svo jafnvel holusteik og sötra rauðvín;)

-Elín Lóa

Una sagði...

Þetta áttu að vera Jökulfirðir. Ég víxlaði örnefnaendingum.