Þann 2. desember 2003 skrifaði ég eftirfarandi inn á blogger.com, og ber það þess öll merki að hafa átt að vera grunnur í nýja bloggfærslu:
Ég stofnaði 4. alþjóðasambandið í dag ásamt Helga, Grjóna og Jóa. Atla var boðið að vera með í stofnuninni en hann hló taugaveiklað. Hann fer fyrstur í byltingunni.
Færslan fór aldrei í loftið. Ætli ég hafi ekki viljað athuga hvort 4. alþjóðasambandið hafi verið til eða ekki, eða kannski ætlað mér að lengja færsluna e-ð, og svo ekki nennt að ýta á publish-takkann. Holdgervingur bloggsögu minnar, endalausar færslur sem aldrei fóru í loftið. Jæja, ætli það kannist ekki flestir við þetta.
Þótt ég viti svo sem núna að 4. alþjóðasambandið hafi verið til áður, þá verða tengslin sem mynduðust í sögutímanum þennan dag milli okkar fjögurra í öftustu röðinni í 6.A seint rofin (ætli Frank hafi ekki bara verið veikur eða kannski ákveðið að halda sig fyrir utan vafasama pólitíska starfsemi). Ekki það að þing hafi nokkurn tímann verið haldið í sambandinu en það er aldrei að vita nema það verði kannski gripið til þess e-n tímann í vor.
Atli veit hins vegar hvað bíður hans.
fimmtudagur, 3. febrúar 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Fallexin?
Enjoyed a lot! dallas cowboys cheerleaders bikini calendar beautiful topless bikini girls asia carrera bikini Sharp lcd 12v monitor buick open golf tournament Amateurs piss batteries 4x4 pickup toyota women bikini Msn video keno Bikini 36 http://www.bikini-thong-gallery.info/bikinigirls.html Paris hilton jpg Porn 3gp movie female shower voyeur Camera digital olympus slr kitchen aid home Celebritie upskirt
Skrifa ummæli