Jæja, núna er það komið á hreint og ekkert sem stöðvar mig úr þessu. Skólinn hefur brugðist vonum mínum og mig þyrstir í samskipti við vini mína og vandamenn. Þann 16. febrúar mun ég sem sagt kveðja höfuðborg Danaveldis eftir snarpa en að mörgu leyti ánægjulega dvöl og halda heim á leið. Þar mun ég una mér fram eftir vori og sumri og er aldrei að vita nema leikskólar borgarinnar fái aftur að njóta starfskrafta minna eftir meira en 15 ára bið. Með haustinu mun ég svo á nýjan leik taka upp utanlandsdvalarhanskann en þá verður betri helmingurinn sem betur fer með í för enda löngu orðin mér ljós andleg fötlun mín þegar hann er fjarri.
Plön næsta árs liggja ekki endanlega fyrir þótt ákveðnar fýsilegar hugmyndir hafi skotið upp kollinum. Þær verða vandlega ræddar við hlutaðeigandi heima á Íslandi.
fimmtudagur, 27. janúar 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Það verður gott að geta gengið að þér vísum hér heima aftur, þótt það sé leiðinlegt að námið hafi ekki staðið undir væntingum. Þetta verður kúl men, ú beibí jess, eins og Ólafur Oddson myndi segja.
Skrifa ummæli