mánudagur, 27. október 2003

Nei, þetta upplifi ég nú ekki oft... Ég hef enga löngun til að fara að sofa vegna þess að það er svo gaman að taka til. Ég mætti alveg upplifa þessa tiltektargleði oftar, þá liti herbergið vonandi betur út.

Eftir þessa dauðhreinsun mun það reyndar líta betur út en það hefur nokkurn tímann gert. Ég fæ m.a. ný húsgögn inn í herbergið, stóra flotta afríska bastkommóðu og útskorna afríska sandalaviðarkistu og hengd verða upp afrísk gluggatjöld. Jah, þegar ég hugsa út í það er það örugglega hugsunin um hið nýja herbergi sem dregur mig áfram í tiltektinni. Svo er líka gaman að senda allt ógeðslega gamla skóladótið á haugana, ótrúlegt alveg hreint hvað manni hefur dottið í hug að geyma af því.

Engin ummæli: