Það var hins vegar ekki gleðisnautt í gærkvöldi, ónei. Raunar var það ákaflega ríkt af gleði og ánægju. Farið var ásamt Grjóna á Bibo Latínufélagsins, í teiti til Jóns Eðvalds og á Nonna. Biboið var sveitt en gott. Jón sýndi okkur snilldarsketsa sem gerðir voru fyrir árshátíðina. Þegar á Nonna var komið hafði Grjóni reyndar yfirgefið gleðskapinn fyrir þó nokkru en ég skemmti bara MR-gellunum Elínu Lóu, Steinunni Þyri, Dagbjörtu, Ásdísi og Berglindi (sem er reyndar ekki í MR) í staðinn (sjálfsgagnrýni hvað?) ...
Moment kvöldsins átti Siggi Arent sem geitungur í fyndnasta sketsi sem ég hef séð á ævinni. Blindasti maður Íslands var líka brillíant.
sunnudagur, 26. október 2003
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli