Hvernig í ósköpunum má það vera að 10-11 á stúdentagörðunum eigi ekki til Season All? Í fyrsta lagi ætti auðvitað hver einasta búð með minnsta vott af sjálfsvirðingu að eiga Season All, hvað þá búð sem er sérstaklega ætluð stúdentum. Ef 10-11 hérna á Eggertsgötunni mætti bara bjóða upp á eina vöru þá væri það Season All. Svona þegar ég hugsa um það, þá ættu þeir yfir höfuð ekki að bjóða upp á neitt nema Season All, Season All er allt sem stúdentar þurfa.
Svo í raun hlýtur eina ástæðan fyrir því að 10-11 er ekki með Season All að vera sú að þeir hafi ekki undan að raða því upp í hillurnar áður en það er rifið út af stúdentum.
mánudagur, 19. apríl 2010
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
í 10/11 á Eggertsgötu er alltaf allt til... nema það sem maður ætlaði að kaupa.
Já, nákvæmlega! Þeir leggja sig fram við að kaupa inn einmitt bara þær vörur, sem maður þarf ekki á að halda.
Ætlaðirðu að fá þér fransbrauð með osti og season all í örbylgjuofninum?
Ég fæ mér það yfirleitt í hvert mál, já.
Skrifa ummæli