miðvikudagur, 2. mars 2005

Nýtt bloggútlit hefur litið dagsins ljós. Vonbrigðin hafa fengið á sig ferskara og léttara útlit og nú geta lýðræðissinnaðir lesendur loksins dregið andann léttar þar sem síðan hefur losnað undan merkjum kommúnismans.

Ég notaði tækifærið og uppfærði tenglasafnið. Næsta tenglauppfærsla mun að öllum líkindum eiga sér stað næst þegar ég breyti útliti bloggsins svo nýir bloggarar verða að sýna þolinmæði. Mikil hönnunarvinna átti sér stað við uppsetningu tenglanna en að lokum varð nýstárleg tillaga mín fyrir valinu. Þar sem tenglasafnið er aðallega hugsað til einkanota verða kvartanir vegna uppsetningarinnar hunsaðar. Hamingjuóskir eru hins vegar vel þegnar.

12 ummæli:

Gvendur sagði...

Þetta er flott. til hamingju.

Atli Freyr sagði...

Linkalistinn er sannkallað blogglistaverk.

Ásdís Eir sagði...

Þetta er flottustu linkar sem ég hef séð! Afar framúrstefnulegt og skæsý!

Snabbi sagði...

Hehe, þakka ykkur fyrir ...

Jolli sagði...

Já, hægrisinnaðir menn í bekknum mínum höfðu einmitt orð á hve hneykslanlegt gamla útlitið var. En þeir hafa náttúrlega ekki vit á neinu.

Arngrímur Vídalín sagði...

Þetta er flott hjá þér.

Una sagði...

Kúl men ú beibí jess.

Björn sagði...

Linkarnir eru wicked, fyrst skildi ég ekkert og hélt að hver stafur væri linkur.
-Bó

Una sagði...

Já ég hélt það líka fyrst.

Nafnlaus sagði...

Nú? Það er einmitt það sem við tvö segjum vanalega um þig.Haha.
-Bó

Nafnlaus sagði...

Þetta er afar smekklegt útlit hjá þér.

Heyrðu, þurfum við ekki að fara að hittast, drengur minn? Það er orðið dálítið langt síðan síðast.

Mokki litli sagði...

Já, smart og sexí.