laugardagur, 1. október 2005

Hvernig er það, ætli fjölmiðlar landsins fái prósentur hjá þessum svokallaða „næringaþerapista“, sem er í Fréttablaðinu í dag? Það er eins og konan þurfi ekki annað en að opna kjaftinn og þá gapi allir fjölmiðlamenn landsins yfir „viskunni“, sem flæðir út.

Jú, ekki vanþörf á og allt það, en hvers vegna þarf fólk alltaf að byrja að bulla til að ná til almennings? Ég ætti ekki að þurfa annað en að vísa á þessar grunnreglur hennar til að fólk skilji hvað ég eigi við, en þar sem ég ... þori þá ætla ég til gamans að prófa að fara eftir reglum nr. 3 og 4. Það ætti nú ekki að vera erfitt, það eina sem ég þarf að gera er að „borða rétta fitu; holla og lífræna“ og „muna að borða meira gæðaprótín“. Heyrðu, þá fer ég bara í það.

3 ummæli:

Dagga sagði...

Ósýnilegur sykur

Kjúklingubaunir

haha

Sigurjón sagði...

Mèr finnst ég hafa lesid svona lista ádur. Hvad heitir tad aftur? Mann.....mannel....ae ég man ekki. Langt ord.

Nafnlaus sagði...

Looking for information and found it at this great site... uk debt consolidation loans student1510 Jackpot slot machine 20 kitchen island cart Bcbg pants Sportsbooks online search Baccarat nancy decanter Pla blackjack Company midland mortgage oklahoma Avalanche scrabble