Ég ætla rétt að vona að fólk sé duglegt við að biðja fyrir páfanum. Það lítur allt út fyrir að kallinn sé dauðvona og ljóst að hann þarf á öllum mögulegum fyrirbænum að halda. Auðvitað eru bænir frá kaþólikkunum áhrifamestar en jafnvel guðleysingjarnir geta gert merkilega mikið gagn í þessu hræðilega erfiða máli.
En páfinn er auðvitað merkilegasti maður heimsins um þessar mundir og ég ætla bara að benda þeim, sem, líkt og ég, fá aldrei nægar fréttir af kallinum á þessa frábæru fréttaveitu hér: alt.test.pope-john-paul-ii. Ég er þegar búinn að kaupa mér aðgang að henni og get vottað að hún á ekki eftir að svíkja nokkurn sannan aðdáanda siðgæðismeistarans.
föstudagur, 1. apríl 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
En hann hlýtur nú að vera orðin dálítið spenntur blessaður kallinn, fyrst það stefnir allt í að hann fái bráðum að hitta Guð.
Já pæling, á að halda í honum tórunni eins og þessari bandarísku (Terri Schiavo eða eitthvað) uns einhver er nægilega skynsamur (og þrjóskur að koma því í gegnum dómskerfið ef með þarf) að kippa í snúruna og toga viðkomandi úr sambandi.
Þetta er náttúrulega bara steypa, af hverju er ekki þessum blessuðu kirkjulögum ekki bara breytt þannig að þegar páfinn getur ekki lengur skeint sér hjálparlaus þá er kallinum bara býttað út, ekkert að vera hlaða einhverjum varahlutum í kallinn.
Óli Margeirs
Skrifa ummæli