sunnudagur, 16. janúar 2005

Jæja, plús næturinnar var þegar maðurinn, sem sat við hliðina á mér í næturstrætónum á leið niður í bæ, spurði hvort hann mætti kyssa mig, og það meira að segja eftir að hann spurði hvers kyns ég væri. Mér finnst það nú sjálfum algjört aukaatriði hvort hann hafi viljað kyssa mig þrátt fyrir að ég sé strákur eða einmitt af því að ég er strákur, þetta er einfaldlega ákveðin viðurkenning á störfum mínum undanfarin ár, að ókunnugu fólk lítist svo vel á mig að það spyrji mig beinlínis hreint út hvort það megi kyssa mig.

Að vísu var það ákveðinn mínus að hann hafi fyrst spurt mig hvers kyns ég væri (með orðunum „hvad er du?“), en það kom mér svo sem ekkert á óvart þar sem það var í annað skiptið sem ég var spurður að því í gærkvöldi. Öllu verra þótti mér þó þegar hann stuttu síðar sagðist vera svo útúrdópaður að hann vissi ekkert hvað hann væri að gera.

3 ummæli:

Atli Freyr sagði...

Einu sinni var bent kurteislega á mig í biðröð og sagt: "Nei, hún er á undan."

Nafnlaus sagði...

Haha, minnir mig á litlu stelpuna á Picadilly line.
Þetta er gjald þess að vera með sítt hár.
-Bó

Nafnlaus sagði...

You have an outstanding good and well structured site. I enjoyed browsing through it tennis Medical malpractice back surgery hardware Cortisone itb running Advanced micro devices conferencing chat email