þriðjudagur, 12. október 2004
Komst að því að tvífari Franks Cassata býr á sama kollegium og ég. Sá hann í gær og hann leit á mig eins og hann ætti að þekkja mig. Þegar ég horfði á eftir honum leit hann alveg eins út og Frank, með jafnsítt jafnbrúnt hár, í peysu og buxum eins og Frank myndi ganga í, sama göngulag, jafnhár, jafnþungur, örugglega einn fjórði Sikileyingur ...
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Taktu laumumynd af honum og birtu á blogginu. Leiðbeiningar:
1) Gakktu næstum því upp að honum einhvers staðar;
2) líttu á einhvern punkt rétt hjá honum og rýndu í þá átt;
3) mundaðu kameruna eins og þú sért að mynda þann punkt en hafðu Frank inni í rammanum;
4) smelltu af;
5) líttu á skjáinn, síðan á ímyndaða punktinn og brostu eins og þér hafi tekist ætlunarverkið, undir engum kringumstæðum skaltu þó líta á Frank;
6) slíðraðu myndavélina og gakktu burt.
Ég hef mikla reynslu af þessu. Með þessari aðferð hef ég tekið myndir af tvífara Helga Hrafns í Kaupmannahöfn, sætum dönskum stelpum og Eiríki Tómassyni lagaprófessor með góðum árangri.
Gömlu Mossad-taktarnir í Atla.
-Bó
Magnað. Ég sem hélt að Frank væri einstakur. Ojæja.
nei Una, ég er tvístakur... ég samdi við þennan mann að hann myndi samt aldrei koma til Íslands.... Snæbjörn, ég verð að sjá hann!
Frank
Skrifa ummæli