fimmtudagur, 28. október 2004

Þegar ég var tólf ára fékk ég í jólagjöf frá frændfólki mínu diskinn OK Computer með Radiohead. E-ð leist mér illa á hann og fór því og skipti honum.

Núna finnst örugglega mörgum það hafa verið mikil mistök hjá mér. Málið er hins vegar að ég skipti honum í Drög að sjálfsmorði með Megasi og Sjálfsmorðssveitinni. Voru það góð eða slæm skipti? Ég get ómögulega metið það sjálfur, en hallast þó að því að það hafi verið skynsamleg skipti upp á seinni tíma að gera, þótt ég hafi án efa ekki gert mér grein fyrir því þá. Núna þekki ég nefnilega báða diskana mjög vel, þar sem ég hef að sjálfsögðu náð mér í Ok Computer núna. Ef ég hefði ekki skipt honum yfir í Drögin á sínum tíma má líklegt telja að ég þekkti þann disk ekki mikið.

4 ummæli:

Sigurjón sagði...

Já, svona geta örlögin snúist undarlega okkur til gæfu. Annars boða ég formlega komu mína til Köbenhavn 2. desember.

Halla Oddný sagði...

Hallóhalló Snæbjörn Hafnarstúdent.
Halla og Arngunnur leyfa sér að kommentera:
Þín er saknað ákaflega. Það er óttalega hjákátlegt, jarmið í kórnum núna. Við hlustuðum á upptökuna af vortónleikum í fyrra. Það er, við hlustuðum í fyrradag, tónleikarnir voru í fyrra. Eins og þú kannski manst. Já, einmitt, seisei. Skilur þú? Allavega. Við fengum alveg, bara, ha...hmmm. Nostalgíukast. Við erum grátandi núna. Nei, við meinum þegar við hlustuðum á upptökuna af tónleiknum í fyrra. Það er, tónleikarnir voru í fyrra, en við hlustuðum í fyrradag. Og grétum.
Blessbless!

Arngunnur og Halla.

P.S. Þín er saknað í kórnum.

Sverrir sagði...

Já, nú rifjast þetta upp fyrir mér. Egill, Gunnar og fjölskylda vissi sínu viti, rétt eins og búast mátti við. Ég er hins vegar sammála um að þetta hafi verið góð býtti, þótt það hafi aðeins verið spurning um tíma hvenær þú sökktir þér í Megas og Radiohead.

Sverrir sagði...

vissu þ.e.