Náði líka að ljúka við Macbeth-versjónina mína fyrir stúdentsprófið í ensku, en það er á morgun. Þýðingin er að mestu leyti algjört drasl en ég er samt svo ánægður með sjálfan mig að hafa klárað þetta að ég á örugglega ekki eftir að byrja aftur að lesa fyrir prófið fyrr en e-n tímann í nótt.
Það er þó bót í máli að ég náði að klára þýðinguna tiltölulega snemma þannig að ég hef tíma til að lesa hana nokkrum sinnum vel yfir. Í 3.bekk var ég einmitt svo duglegur að ég skrifaði upp 32 síðna glósur úr Rómarheftinu fyrir söguprófið, sem er örugglega mesta afrek skólagöngu minnar. Hins vegar var ég fram á síðustu stundu að klára verkið og náði því ekkert að lesa glósurnar yfir fyrir prófið og klúðraði því gjörsamlega.
En vegna stigsprófsins og Macbeth-„þýðingarinnar“ er ég í miklu sólskinsskapi akkúrat núna.
miðvikudagur, 5. maí 2004
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli