föstudagur, 7. maí 2004

Auðvitað vissu allir um pyntingarnar í Írak, George Bush, Donald Rumsfeld, Tony Blair, allir yfirmenn bandarísku og bresku herjanna, og svo miklu miklu fleiri. Ef þetta lið hefur ekki beinlínis gefið sjálft fyrirskipanir um pyntingarnar þá hefur það örugglega leitt þær viljandi hjá sér eða lagt blessun sína yfir þær. Núna, þegar myndirnar hafa lekið út, neyðist það svo til þess að blaðra e-ð um hvað það sé „rosalega sorrý“ yfir þessu og að þetta muni barasta aldrei gerast aftur.

Því núna eru allir hermenn orðnir svo fjarskalega góðir og engum er lengur kennt að pynta (já, einmitt). Núna er fólki barasta ekki kennt neitt svo að það fríki alveg pottþétt út þegar það mætir í sturlunina suður í Írak. Dapurlegast er auðvitað að hugsa til þess að líklegast eigi engir toppar nokkurn tímann eftir að þurfa að svara til saka út af þessu, í mesta lagi óbreyttir hermenn eða tiltölulega lágtsettir liðsforingjar, sem höndluðu auðvitað ekki ástandið og urðu einfaldlega ga-ga (hafa kannski ekki verið þeir stabílustu fyrir). Ömurlegt, ömurlegt, ömurlegt.

Engin ummæli: