föstudagur, 24. október 2003

Rakst reyndar einnig á aðrar myndir, sem ég þurfti á sínum tíma að fela fyrir Orminum en hann vann þá fyrir Landsvirkjun. Myndirnar tvær eru líklegast teknar af Helganum og sýna tvennt:

1. Ónefndan bloggara kastandi eggjum í rauðan Subaru-jeppa í teiti sem haldin var á Lynghaganum sumarið 2001.

2. Rauðan Subaru-jeppa merktan Landsvirkjun gjörsamlega útataðan í eggjadrullu. Jeppa þennan var nágrannakona okkar með í láni. Og, nei, hún var ekkert sérstaklega upptendruð yfir ástandinu á bílnum þegar hún þurfti að fara á honum í vinnuna daginn eftir.

Ég veit að ónefndi bloggarinn lítur stöku sinnum við á þessari síðu svo ég ætla að láta hann vita að Sverrir er búinn að jafna sig á þessu fyrir þó nokkru síðan (uuh, hann var reyndar örugglega búinn að gleyma þessu tveimur dögum síðar). Sjálfur er ég afar hrifinn af gjörningnum. Ef bloggarinn vill sjá myndirnar er honum velkomið að kommenta hér að neðan eða hafa samband við mig eftir öðrum leiðum (ef hann man þá eftir þessu) ...

Engin ummæli: