Í hebreskutíma í dag tók Atli upp Gallastríðin eftir Caesar og velti því fyrir sér hvort fornmálanemar árið 4003 muni nokkuð lesa „Íraksstríðin“ ("The Gulf Wars") eftir George Bush. Eftir 2000 ár verði enskan auðvitað löngu útdauð og e-t kínverskt kreólamál líklegast orðið helsta alþjóðamálið. Aðeins fornmálanördar muni hafa fyrir því að læra ensku.
En eins og Gallastríðin eftir Caesar eru á frekar „léttu“ máli (nei, þau eru það raunverulega ekki) þá yrðu Íraksstríðin eftir George W. Bush á einföldu máli og einstaklega þægileg og auðveld aflestrar. Þau yrðu að því leyti kjörin fyrir byrjendur í hinu forna máli.
þriðjudagur, 23. september 2003
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli