þriðjudagur, 22. júlí 2003

Ein best heppnaða auglýsing sem ég man eftir úr æsku minni var auglýsing á Ali-beikoni frá Síld og fiski. Ég man hvað mér þótti hún alltaf smekkleg og vel til fundin. Á henni sást Alisvínið, sem allir þekkja utan af pakkningum af Alivörum, vera að tala við unga Aligrísinn.

Alisvínið spyr Aligrísinn: „Hvað ætlar þú að verða þegar þú ert orðinn stór, sonur sæll?“
Og sonurinn svarar: „Alibeikon frá Síld og fiski, eins og þú, pabbi.“

Engin ummæli: