Í tilefni dagsins tók ég þátt í fótboltaleik í utandeildinni, nánar tiltekið i bikarkeppninni. Leikurinn fór ekki alveg eins og vonast var til, en við lærðum heilmikið af honum.
Fyrir það fyrsta held ég að allir liðsmenn ættu að fara í fitun, bæta á sig eins og fimmtán til tuttugu kílóum hver. Fara svo í ræktina og breyta þessum kílóum í vöðva. Síðan þurfum við bara að æfa spretthlaup og stungusendingar og þá ættum við að vinna þetta allt saman.
sunnudagur, 1. júní 2003
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli