miðvikudagur, 9. apríl 2003

Var að tala við karl föður minn á netinu. Það kjaftaði á honum hver tuska, eins og endranær.

Hann sagði mér m.a. söguna af Stebba Hilmars þegar hann kom heim úr vinnunni og konan hans hafði útbúið sérstaklega rómantískan kvöldverð með kertaljósum. Stebbi vatt sér inn úr dyrunum og sagði, þegar hann sá öll kertaljósin, „Hvað, er rafmagnslaust??“

Reyndar sagði hann mér sömu sögu í seinasta samtali, fyrir um mánuði (og ég hafði auk þess heyrt hana áður). Þegar ég benti honum á það sagðist hann vera farinn að hafa það fyrir venju að segja alltaf sama fólkinu sömu söguna. Þau í vinnunni hans eru líka farin að kalla hann „catugo“, sem þýðir „sá elliæri“ ...

Engin ummæli: