laugardagur, 12. apríl 2003

Pönkið lifi!

Það eru ekki margir stjórnmálaflokkar sem státa af pönkhljómsveit sem í eru frambjóðendur til Alþingiskosninga. Þegar ég hugsa mig um dettur mér aðeins einn flokkur í hug, VG.

Ekki nóg með að þeir séu tveir frambjóðendurnir, Kolbeinn Óttarsson Proppé og Grímur Atlason, í pönkgrúppunni Engu kjaftæði, heldur eru þeir báðir í efstu sætum sinna lista. Kolbeinn leiðir lista VG í Suðurkjördæmi en Grímurinn er í 4. sæti í Reykjavík norður.

Hér með sannast enn einu sinni að langmestu töffararnir eru í VG! Það er óhrekjanleg staðreynd ...

Engin ummæli: