fimmtudagur, 3. apríl 2003

Kosningar í MR nálgast nú óðfluga. Að sjálfsögðu varð maður að finna sér nokkur ásættanleg embætti til að bjóða sig fram í. Fyrir valinu urðu annars vegar Selsnefnd, en hins vegar lagatúlkunarnefnd. Áreiðanlega skemmtilegt að gegna þessum embættum.

Við erum fimm sem bjóðum okkur saman fram í Selsnefnd. Ekkert mótframboð barst svo að við erum sama sem sjálfkjörin, þurfum aðeins að fá meirihluta atkvæða. Við erum ég, Helgi, Hilmir, Siggi og Una. Allt bloggarar.

Í lagatúlkunarnefnd býð ég mig fram ásamt Frank Cassata og Jóhanni G. Kolbrúnarsyni. Það væri ekki amalegt að starfa með þeim. Reyndar starfar lagatúlkunarnefnd ekkert sérstaklega mikið, en maður veit aldrei hvaða rugl formenn félaganna koma sér í á næsta ári...

Vinur minn, Sigurjón, býður sig hins vegar fram í tónlistadeild (já, ég fæ ekki betur séð en hún heiti tónlistadeild, en ekki tónlistardeild. Veit ekki hver ber ábyrgð á þessari vitleysu.)

Við Grjóni dunduðum okkur við það í gærkvöldi að útbúa auglýsingar fyrir framboðið hans. Þær heppnuðust ágætlega. Hér er afraksturinn:

Balkan-Grjóninn

Grjóni hinn japanski

Nýjasta tegund nótnaskriftar ...?

Engin ummæli: