föstudagur, 4. apríl 2003

Hér er brot úr nýjasta einleik Alexöndru Kjeld:

„Ertu svangur. Ertu þyrstur. Hefurðu kannski ekki borðað lengi. Hvað er að. Geturðu ekki svarað mér. Já, þegiðu? Hættu þessu? Láttu ekki svona? Vertu þægur? Ha. Hvað sagðirðu. Langar þig til að koma einhverju á framfæri. Ha. Eru ekki allir í stuði. Er ekki allt í góðu. Segðu eitthvað??“

Kalt mat: Er hægt að flytja þennan textabút eðlilega, miðað við greinarmerkjasetningu? Setningarnar, sem enda á punkti, mega auðvitað alls ekki hljóma eins og spurningar, en á hinn bóginn verða setningarnar, sem enda á spurningamerki, að hljóma eins og spurningar.

Tjah, alla vega þyrfti ég fjandi mikla æfingu til að ná almennilegu flæði...

Engin ummæli: