Eins og e-r hafa vonandi tekið eftir hef ég ekki litið inn á bloggerinn síðan á föstudagskvöldið. Loksins þegar ég ætlaði að drullast til þess að láta e-ð frá mér, beið þá ekki þetta líka ljómandi fína blogg eftir mér. Ég póstaði sem sagt blogg klukkan hálfþrjú á laugardagsnóttina en á e-n undraverðan hátt hefur birting þess misfarist (hmm, skrítið?).
Bloggið tímasetur m.a. árás á dansgólfinu sem Frikkinn hefur áður sagt frá á blogginu sínu. Gæti reynst afdrifaríkt í rannsókn á málinu.
Seinasta blogg, frá úrslitakvöldinu, hefur því ekki birst áður opinberlega.
miðvikudagur, 2. apríl 2003
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli