Niðri í MR rakst ég á auglýsingu frá stjórnmálaskóla Samfylkingarinnar. Skólinn hefur verið haldinn undanfarin ár við miklar og góðar undirtektir ungra hægrivinstrimanna og tekur á öllum þáttum pólitískrar baráttu nú fyrir kosningar. Meðal annars mun Einar Karl Haraldsson fara yfir sóknarfæri fylkingarinnar á markaðssviðinu en Flosi Eiríksson fjallar um framkomu í fjölmiðlum.
Stjórnmálaskóli Samfylkingarinnar hefur skapað sér sess sem einn virtasti stjórnmálaskóli sósíaldemókrata á Norðurlöndum og gefur vinsældum hins aðalstjórnmálaskóla landsins lítið eftir.
Ég hvet alla sem vilja kynnast nýjustu og ferskustu hugmyndunum í íslenskri pólitík til að skrá sig fyrir fimmtudaginn. Látið færustu stjórnmálaskörunga landsins leiða ykkur inn í kosningabaráttuna framundan.
mánudagur, 24. febrúar 2003
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli