fimmtudagur, 27. febrúar 2003

Hálendisgangan var vel massíf. Ég gæti best trúað því að allt að tvö þúsund manns hafi á e-m tímapunkti tekið þátt í mótmælunum. Fuglafræðingur, vanur fuglatalningu, taldi 1300 - 1400 manns þegar nokkuð var liðið á fundinn niðri á Austurvelli. Þegar fremsti hluti göngunnar var að beygja fyrir hornið hjá Kaffi París niðri í Austurstræti var aftasti hlutinn enn þá uppi í Bankastræti.

Mbl.is tókst samt á aðdáunarverðan hátt að telja „allt að eitt þúsund manns“. Spurning hvað lögreglan telji marga.

Engin ummæli: